Borgartún 24 212, 105

Fjarlægð/Seld - Eignin var 5 daga á skrá

Verð 109,9
Stærð 118
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 935
Skráð 4.5.2024
Fjarlægt 10.5.2024
Byggingarár 2024
mbl.is

Betri Stofan fasteignasala Borgartúni 30 og Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - jason@betristofan.is kynnir: SÝNUM DAGLEGA BORGARTÚN 24
Glæsilegar nýjar íbúðir í vel staðsettu fjölbýlishúsi í Borgartúni í Reykjavík. Íbúðir afhendast fullbúnar með vönduðum innréttingum, innbyggðum eldhústækjum og gólfefnum. Stæði í bílageymslu. Þaksvalir í sameign. Útsýni. 

Heimasíða https://b24.is

Um er að ræða nánar tiltekið íbúð 212 í Borgartúni 24a, 4ra herbergja íbúð. Samkvæmt Fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 117,5 fm, þar af er sérgeymsla 10,1 fm. Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu og borðstofu í alrými, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús inn af baðherbergi. Sérgeymsla fylgir íbúðinni. Svalir snúa í vestur. Sérstæði í bílageymslu (B39) fylgir íbúðinni. 
Borgartún 24 er glæsilegt 7 hæða fjölbýlishús með 64 íbúðum á 2.-7 hæð og verslunar- og þjónusturýmum á 1. hæð í einu helsta viðskiptahverfi borgarinnar. Í Borgartúni er blönduð byggð íbúða, skrifstofu-, verslunar- og þjónustuhúsnæðis. Frábær staðsetning í næsta nágrenni við stóra vinnustaði og alla helstu þjónustu, í göngufæri frá miðbænum og Laugardalnum. Byggingin er byggð utan um sameiginlegan inngarð. Á 4. hæð er einnig sameiginlegur þakgarður, á 6. hæð er sameiginlegur þakgarður og á 7. hæð eru sameiginlegar þaksvalir.
 
Frágangur íbúða að innan: Vandaðar þýskar innréttingar frá Nobilia í eldhúsi, baði og herbergjum (söluaðili er GKS). Íbúðirnar afhendast fullbúnar með tækjum og gólfefnum. Eldhúsraftæki koma frá Siemens, ísskápur og uppþvottavél eru innbyggð. Harðparket á gólfum herbergja og í alrými. Gólf á baðherbergjum og þvottahúsum eru flísalögð. Hreinlætistæki frá Grohe.  
Frágangur utanhúss: Húsið er staðsteypt, einangrað að utan og klætt með viðhaldsléttri álklæðningu eða sambærilegu efni. Timbur/ál gluggar. Lóð og bílastæði: Sameiginlegur inngarður er á 2. hæð og sameiginlegar þaksvalir eru á 4. hæð. Í bílakjallara eru 39 bílastæði, þar af 4 fyrir hreyfihamlaða, og 30 bílastæði eru á lóð. Bílastæði fyrir hreyfihamlaða er einnig á plani við aðalinngang.
Hiti og rafmagn: Hiti er sameiginlegur og reiknast samkvæmt hlutfallstölu en rafmagn er á sérmæli fyrir hverja íbúð. 
Skipulagsgjald: Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem er 0,3% af brunabótamati.

Bókið skoðun: 
Jason Kristinn Ólafsson, sími 775 1515 - löggiltur fasteignasali. - netfang: jason@betristofan.is
Atli S. Sigvarðsson, sími 899 1178 - löggiltur fasteignasali. - netfang: atli@betristofan.is
Gunnar S. Jónsson, sími 899 5856 - löggiltur fasteignasali. - netfang: gunnar@betristofan.is
Páll Þórólfsson, sími 893 9929 - löggiltur fasteignasali. - netfang: pall@betristofan.is





Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18